Miðflokkurinn í Árborg kynnti fyrir stundu þá frambjóðendur sem skipa sex efstu sætin á lista flokksins í Árborg í komandi sveitarstjórnarkosningum. Tómas Ellert Tómasson byggingarverkfræðingur verður oddviti flokksins og annað sætið skipar Guðrún Jóhannsdóttir viðskiptafræðingur. Á þriðja sæti listans er Solveig Pálmadóttir en hún er með Bs í viðskiptalögfræði og er einnig hársnyrtimeistari. Hér að neðan má sjá efstu sex frambjóðendur listans.
1. Tómas Ellert Tómasson Oddviti og byggingarverkfræðingur
2. Guðrún Jóhannsdóttir Viðskiptafræðingur
3. Solveig Pálmadóttir með Bs í Viðskiptalögfræði og hársnyrtimeistari
4. Ari Már Ólafsson Húsasmíðameistari
5. Erling Magnússon Lögfræðingur
6. Sverrir Ágústsson Félagsliði á réttargeðdeild LSH