Mikil heilsubót að glíma við embættismenn

Þorsteinn Steingrímsson góðborgari.

Það er heilsubætandi að glíma við embættismenn í kerfinu, enda full vinna og heldur manni að verki. Þetta segir Þorsteinn Steingrímsson góðborgari og fasteignasali í skemmtilegu og fræðandi viðtali við Guðmund Franklín Jónsson en Þorsteinn var gestur Guðmundar í dag. Eins og fyrr segir þá telur Þorsteinn það vera heilsubætandi að glíma við embættismenn en það hefur hann svo sannarlega fengið að reyna í gegnum árin. Í viðtalinu rifjar Þorsteinn upp litríkt lífshlaup sitt og störf, kynni sín af vini hans, Donald Trump forseta Bandaríkjanna sem hann kynntist óvænt fyrir nokkrum árum, og baráttunni við kerfið. Hlusta má á þetta skemmtilega viðtal í spilaranum hér að neðan.

 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila