Kristján Þór Júlíusson, samstarfsráðherra Norðurlanda, sat í vikunni fund samstarfsráðherranna sem haldinn var í Helsinki í tengslum við þing Norðurlandsráðs. Á fundi samstarfsráðherranna var m.a. rætt um Norðurlönd í alþjóðlegu samstarfi, umskiptin til grænna samfélags og stjórnsýsluhindranir. Sérstaka athygli fundarmanna vöktu niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var á Norðurlöndum á viðhorfi norrænna borgara til norræns samstarfs. Könnunin sýnir mikinn stuðning Norðurlandabúa við norrænt samstarf. Meðal niðurstaðna má nefna að um 90% telja norrænt samstarf mjög mikilvægt eða mikilvægt. Flestir telja mikilvægast að samstarfið taki til öryggis- og varnarmála, þvi næst koma menntun, heilbrigðis- og félagsmál og loftslags- og umhverfismál. Tæp 70% svarenda voru þeirrar skoðunar að auka ætti norrænt samstarf.