Baráttan fyrir jafnrétti kynjanna er afar mikilvæg en þegar upp er staðið snýst baráttan um það sem er mikilvægast, að einstaklingar fái að njóta sín í samfélaginu alveg óháð því hvaða kyni þeir tilheyra. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristínar Ástgeirsdóttur í þætti Markúsar Þórhallssonar í dag. Kristín segir mjög mikið hafa áunnist í baráttunni yrir jafnrétti kvenna á margt megi gera betur en segir að jafnrétti sem varðar karla til dæmis hvað fæðingarorlof feðra varðar ekki komna mjög langt enn þó að hér á landi hafi ýmislegt áunnist “ það hefur hvorki gengið né rekið í Evrópu varðandi fæðingarorlof feðra vegna íhaldssamra skoðana vissra afla um að verið sé að sundra fjölskyldum með því að setja þetta á þó flestir viti að þessu sé öfugt farið“,segir Kristín. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.