Mikilvægi fjölmiðla hefur aldrei verið meira en einmitt nú þegar vinsældir samfélagsmiðla eru jafn miklar og raun ber vitni. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Páls Vilhjálmssonar blaðamanns og bloggara og Kristjóns Kormáks Guðjónssonar ritstjóra dv.is í kosningaútvarpinu í dag, en þeir voru gestir Péturs Gunnlaugssonar. Kristjón bendir á að falsfréttir og rangfærslur á samfélagsmiðlum eins og Facebook geti haft afleiðingar til dæmis fyrir aðstandendur í viðkvæmum málum “ við sjáum hvað gerðist þegar Birna Brjánsdóttir týndist, þá fóru ótrúlegustu og hræðilegustu sögur af stað sem voru særandi fyrir fjölskylduna og bara vont fyrir okkur öll sem fylgdust með þessu, en þá kom í ljós einmitt mikilvægi fjölmiðla í því að sía út vitleysuna og birta réttar upplýsingar„,segir Kristjón. Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér að neðan.