Mikilvægt er að fá upplýst hvaða einstaklingar það eru sem standa að þeim vogunarsjóðum sem vilja kaupa Arionbanka. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Birgis Þórarinssonar þingmanns Miðflokksins í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Birgir segir að það hljóti að vera eðlileg krafa að upplýst verði um hverjir standi á bak við hin fyrirhuguðu kaup “ ég held að það sé nokkuð borðleggjandi að flestir vilji nú vita við hverja þeir eru að eiga viðskipti, við erum ekkert að eiga við einhverja viðvaninga hérna í þessu máli, þetta eru alveg eldklárir menn sem hafa staðið að því að semja þessa fléttu og þeir vita alveg nákvæmlega hvað þeir eru að gera, í fyrsta lagi þá bara minnka þeir efnahag bankans með því að selja úr honum mestu verðmætin, til dæmis Valitor, Stefnir og önnur mikilvæg félög, þá selst bankinn fyrir minni pening, og það er algjörlega ljóst að eins og menn vinna í þessum geira að ef bankinn yrði seldur að þá myndu þeir finna tölu sem hentaði þeim„,segir Birgir. Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér að neðan.