Minnast fórnarlamba umferðarslysa með táknrænum hætti

Næstkomandi sunnudag verður þeirra sem farist hafa í umferðarslysum á Íslandi minnst með táknrænum hætti við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi næstkomandi sunnudag. Um er að ræða árlegan viðburð sem nú er haldinn í sjöunda sinn. Minningarathöfn verður við þyrlupallinn við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi kl. 16 Hliðstæð athöfn fer fram víða um heim undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu.
Fram kemur í tilkynningu um viðburðinn að um það bil 4.000 einstaklingar hafa láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. Enn fleiri takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum og óhætt sé að segja að allir upplifi með einum eða öðrum hætti afleiðingar umferðarslysa. Vart sé til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni.
Fram kemur í tilkynningunni að allir séu velkomnir að taka þátt í minningarathöfninni við þyrlupall bráðamóttökunnar í Fossvogi sem hefst kl. 16. Boðað verður til einnar mínutu þagnar kl. 16:15 og eru allir sem eiga þess kost hvattir til að taka þátt í því. Á þessum degi er vert að leiða hugann að minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni og íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber.
Dagurinn er ekki aðeins tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur skapast sú venja hér á landi að heiðra starfsstéttir sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður. Þeim eru færðar þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra. Gert er ráð fyrir að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar lendi á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við þyrluna. Má þar nefna lögreglubíla og bifhjól, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleiri. Í erindum dagsins verður lögð sérstök áhersla  á þann stóra hóp aðstandenda sem eiga um sárt að binda.
Dagskrá:
15:45 – Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við spítalann.
16:00 – Athöfn sett.
16:05 – Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flytur ávarp og segir frá tilefni dagsins.
16:15 – Mínútuþögn.
16:16 – Þóranna M. Sigurbergsdóttir segir sögu sína en hún missti son sinn, Sigurjón Steingrímsson, aðeins 17 ára gamlan í umferðarslysi á Reykjanesbrautinni árið 1996. Sigurjón hefði orðið 40 ára þennan dag, 18. nóvember.
16:30 – Athöfn lýkur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila