Minnast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum

thyrlan3Á morgun sunnudaginn 20. nóvember verður þeirra minnst sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Þetta er í fimmta sinn sem efnt er til þessarar athafnar og er hliðstæð athöfn víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember minningu þeirra sem látist hafa í umferðarslysum.
Athöfnin hérlendis verður haldin við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík og hefst klukkan 11. Í tilkynningu um viðburðinn segir að landsmenn séu hvattir til að leiða hugann að minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni og íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber í umferðinni. Þá segir að dagurinn sé ekki aðeins tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur skapast sú venja hér á landi að heiðra þær starfsstéttir sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður og með þeim hætti eru þessum starfsstéttum færðar þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf þeirra.
Gert er ráð fyrir að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar lendi á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við þyrluna. Má þar nefna lögreglubíla og bifhjól, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleiri.

Dagskrá athafnarinnar er sem hér segir:

  • Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við þyrlupall bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi klukkan 10:45
  • Athöfnin hefst klukkan 11:00
  • Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis, setur athöfnina.
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, flytur ávarp klukkan 11:05.
  • Einnar mínútu þögn verður klukkan 11:15.
  • Klukkan 11:16 mun Helga Þorbergsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sjúkraflutningamaður í Vík í Mýrdal, segja frá lífsreynslu sinni og störfum tengdum umferðarslysum.
  • Aðstandendur og aðrir sem minnast vilja þeirra sem hafa látist í umferðarslysum eru velkomnir á minningarstundina. Þátttakendum verður í framhaldinu boðin hressing í bílageymslu bráðamóttökunnar. Þeir sem eiga ekki heimangengt eru hvattir til að sýna viðeigandi hluttekningu þennan dag, hvar sem þeir eru staddir.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila