Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir að það mikilvægasta sem menn þurfi að hafa í huga áður en lagt er upp í ferðalagið sé að hafa beltin spennt en þó séu ekki allir í umferðinni með þetta atriði á hreinu. Runólfur sem var gestur Markúsar Þórhallssonar og Jóhanns Kristjánssonar í morgunútvarpinu í morgun segir að sem dæmi sé misbrestur á að ferðamenn spenni beltin “ það er það sem við erum að sjá í sambandi við slysin hjá sumum af þessum erlendu ferðamönnum að það virðist ekki vera inn í menningunni hjá þeim að spenna beltin„,segir Runólfur. Þá segir Runólfur að tíðari slys á kínverskum ferðamönnum en öðrum sé hægt að rekja að miklu leyti til reynsluleysis, til að mynda hafi þeir til dæmis oft einungis reynslu úr ökuhermum, og þá séu dæmi um að kínverskir ökumenn hafi alls ekki tekið ökupróf heldur hafi keypt ökuréttindi.