Annar þeirra manna sem réðust inn í kirkju í bænum Saint Etienne du Rouvray í Frakklandi í gær tóku fólk í gíslingu og myrtu prest var í morgun nafngreindur í erlendum fjölmiðlum. Maðurinn Adel Kermiche var sá sem tók prestinn af lífi með því skera hann á háls, á meðan hinn maðurinn sem ekki hefur enn verið nafngreindur tók upp myndband af voðaverkinu, að því loknu fluttu mennirnir predikun á arabísku framan við altari kirkjunnar. Eins og fram hefur komið hafa hryðjuverkasamtökin ISIS lýst því yfir að mennirnir hafi verið liðsmenn þeirra. Þá hefur komið fram að annar maðurinn hafi verið undir eftirliti franskra yfirvalda vegna tengsla við hryðjuverkahópa. Franska lögreglan vinnur áfram að rannsókn málsins.