Nær helmingur innflytjenda eða 48,8% sem hafa sest að í bænum Sandviken í Svíþjóð eru atvinnulausir. Þetta kemur fram í Arbetarbladet. Þar segir að ástandinu í bænum megi líkja við það sem sjá megi í úthverfum Parísar. Óhætt er að segja að ástandið sé alls ekki í takt við skýrslu sem kom út fyrir þremur árum þar sem gert hafði verið ráð fyrir að með því að taka á móti innflytjendum myndi bærinn hagnast um 6,4 milljarða íslenskra króna. Í Sandviken er meðal atvinnuleysi miðað við höfðatölu íbúa 13,7%. Atvinnuleysi meðal innflytjenda í Svíþjóð allri er hins vegar rúmlega 22% að meðaltali.