Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Hafnarfirði

Maðurinn sem lét lífið í vinnuslysi í Hafnarfirði síðastliðinn mánudag hét Einar Ólafur Steinsson. Ólafur var 56 ára og lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn. Slysið bar að með þeim hætti að Einar sem var að störfum við krana á svæði nýbyggingar féll til jarðar úr krananum með þeim afleiðingum að hann lést.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila