Níutíu fíkniefnamál á Secret Solstice

Um 90 fíkniefnamál komu upp í tengslum við tónlistarhátíðina Secret Solstice, sem haldin var í Laugardalnum um helgina.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að aðallega hafi verið lagt hald á kannabisefni, en einnig ætlað kókaín, amfetamín, MDMA og e-töflur svo önnur fíkniefni séu nefnd. Við eftirlitið naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar tveggja fíkniefnaleitarhunda og reyndust þeir mjög vel að sögn lögreglu. Eitthvað var um pústra á hátíðinni, en níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu. Eins og vænta mátti var ástand gesta misjafnt og þurfti að fjarlæga einhverja þeirra af svæðinu af þeirri ástæðu. Nokkuð var um kvartanir íbúa í nágrenninu vegna hávaða frá hátíðinni, en tilkynningarnar voru vel á annan tug.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila