Sífellt fleiri Frakkar draga í efa opinberar skýringar á ástæðum Notre Dame brunans. Miklar umræður eru um málið á samfélagsmiðlum og kalla sumir brunann fyrir „9/11 Evrópu“ samanborið við árásina á tvíburaturnana í New York 11. september árið 2001. Það sem einnig hefur áhrif á umræðuna eru myndir úr myndavél á Montparnasse turninum í 2,3 km fjarlægð sem sýna mann á þaki dómkirkjunnar á þeim stað þar sem eldurinn byrjaði kl 17.05 fyrir brunann. Franska fréttastofan AFP hefur staðfest að myndbandið úr myndavél ViewSurf er ekta (sjá hér að neðan) en á myndbandinu kemur tvívegis glampi frá manninum á þakinu eins og hann kveiki þar eld. Fyrsta brunavörnin fór í gang kl 18.05 en vaktmenn sáu þá ekkert. Kl. 18.43 fór brunavarnarkerfiið aftur í gang og þá sáu vaktmennirnir þriggja metra háar eldstungur upp úr þakinu. ViewSurf segist ekki ætla að láta frá sér efni úr myndavélinni en það var þegar um seinan þar sem myndir úr henni voru þegar komnar um allt á netinu. Philippe Karsenty sem er fulltrúi í borgarhverfinu Neuilly hefur einnig verið gagnrýninn og sagði fólk vilja vita hverjar raunverulegu ástæður brunans væru í stað „pólitískra rétttrúnaðaryfirlýsinga“.
Niclas Dupont – Aignan leiðtogi Stand-Up France segist ekki vera sáttur við „opinberar skýringar sem segja að um slys sé að ræða“ og krefst rannsóknar á orsökum brunans. Saksóknari Parísar bandar því frá sér og segir engar sannanir liggja fyrir um „verknað framinn af ásetningi.“ Þáttakendur umræðuhópsins QEurope hafa skýrt brunann „9/11 Evrópu“ og ásaka leiðandi fjölmiðla fyrir að breiða út lygar um upphaf brunans.
::BREAKING::
Again, from nearby public webcam on 4/15/19 there is a dark figure walking on the rooftop before the fire – NO SAFETY VEST – and no other workers present. This person creates TWO flashes of light or sparks. Pay attention. Better video resolution. #NotreDameFire pic.twitter.com/j3m9Px1hlc
— Vernon (@TipsyPianoBar) April 18, 2019