Ný lög um Seðlabanka Íslands samþykkt

Alþingi hefur samþykkt ný lög um Seðlabanka Íslands. Með lögunum sameinast Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið í eina stofnun frá og með næstu áramótum. fram kemur í tilkynningu að breytingar verði ekki gerðar á þeim verkefnum sem eru á ábyrgð þessara tveggja stofnana heldur lúti breytingarnar að sameiningu verkefna hjá einni stofnun, stjórnskipan og fyrirkomulagi ákvarðanatöku, einkum í ljósi aukins vægis fjármálastöðugleika. Helstu atriði nýju laganna eru:

1. Markmið Seðlabankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi.

2. Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra til fimm ára í senn, að hámarki þó tvisvar sinnum. Þá skipar forsætisráðherra þrjá varaseðlabankastjóra einnig til fimm ára í senn og að hámarki tvisvar sinnum. Einn leiðir málefni er varða peningastefnu, einn leiðir málefni er varða fjármálastöðugleika og einn leiðir málefni er varða fjármálaeftirlit. Varaseðlabankastjórar fjármálastöðugleika og fjármálaeftirlits eru skipaðir eftir tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra.

3. Rekstur og stjórnun Seðlabankans er í höndum seðlabankastjóra. Hann ber ábyrgð á rekstri bankans og fer með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru öðrum falin. Sumar ákvarðanir eru teknar sameiginlega af seðlabankastjóra og varaseðlabankastjórum.

4. Ákvarðanir um beitingu tiltekinna valdheimilda bankans eru teknar af peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd og fjármálaeftirlitsnefnd. Nefndirnar eru skipaðar 5-7 fulltrúum, bæði embættismönnum Seðlabankans og utanaðkomandi sérfræðingum á viðkomandi sviði.

5. Varaseðlabankastjórar hafa faglega umsjón með vinnu bankans á sínum sérsviðum. Þeir bera ábyrgð á undirbúningi vinnu fyrir nefndir bankans og sitja jafnframt í einstökum nefndum bankans.

6. Bankaráð hefur eftirlit með því að Seðlabanki Íslands starfi í samræmi við þau lög sem um  starfsemina gilda. Í bankaráði sitja sjö manns sem kosnir eru hlutfallskosningu af Alþingi.

7. Á fimm ára fresti skal ráðherra fela þremur óháðum sérfræðingum að gera úttekt um hvernig Seðlabanka Íslands hafi tekist að uppfylla markmið um stöðugt verðlag, fjármálastöðugleika og framkvæmd fjármálaeftirlits.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila