Ný tilfelli nóróveiru greinast á Úlfljótsvatni

Nóróveira hefur greinst á ný meðal skáta sem dvelja við Úlfljótsvatn. Einkennin eru þau sömu og hjá þeim sem veiktust á aðfaranótt föstudags, uppköst og niðurgangur, en staðfest var að þá væri um nóró-veiru að ræða. Að sögn forvarsmanns á Úlfljótsvatni er ekki óvenjulegt að veiran stingi sér niður á ný þar sem hennar hefur orðið vart „okkur skilst að þetta sé ekki óvenjulegt við þessar aðstæður, að einkenni komi seinna fram hjá sumum en öðrum og að í kjölfarið séu líkur á einhverjum smitum til viðbótar. Það var því allt eins von á þessu,“ segir Elín Esther Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Úlfljótsvatns, „Við höfum búið um þá veiku í sér húsi og höfum fengið lánaða bedda frá Rauða krossinum ef ske kynni að okkur skorti rúm. Alls hafa fimm einstaklingar veikst í dag og búið er að aðskilja þá frá öðrum á meðan þetta gengur yfir. Við erum í reglulegu sambandi við heilbrigðisstarfsfólk sem stýrði hjálpinni sem við fengum um helgina og á þessu stigi er ekki litið svo á að þörf sé á frekari aðgerðum,“ segir Elín. Þá segir Elín að allt kapp sé lagt á að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar  „Á þessum tímapunkti er ekkert sem bendir til þess að það sé eitthvað á staðnum sem veldur þessu, en nú verður allt kapp lagt á að koma í veg fyrir frekari smit á milli fólks.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila