Ökuréttindi atvinnubílstjóra án endurmenntunar ekki afturkölluð

Dómsmálaráðuneytið hefur ákveðið að lögregluembætti muni ekki afturkalla gild skírteini gefin út fyrir 10. september 2018 með ökuréttindum fyrir bílstjóra til aksturs ökutækja í flokkum C, C1, D1 og D í atvinnuskyni, sem ekki hafa lokið lögbundinni endurmenntun. Í tilkynningu segir að meginástæða sé sú að ekki er að finna refsiheimild í umferðarlögum sem leggur bann við akstri bílstjóra með gild ökuskírteini í atvinnuskyni án endurmenntunar.
Þá segir í tilkynningunni að öllum sem stjórna ökutækjum í þessum flokkum í atvinnuskyni verði áfram skylt að sækja sér endurmenntun og að framvegis verði ökuskírteini með atvinnuréttindum eingöngu gefin út til einstaklinga sem lokið hafa lögbundinni endurmenntun. Skírteini fyrir umrædda flokka til aksturs í atvinnuskyni eru gefin út til fimm ára.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila