Ólafur Arnarson hagfræðingur sem er í kjöri til formanns Neytendasamtakanna ætlar að gera Neytendasamtökin sýnilegri en þau hafa verið hingað til, verði hann kjörinn formaður. Ólafur sem var gestur Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í dag segir að hann sé með ákveðnar hugmyndir hvernig hann geti gert samtökin sýnilegri og fært þau enn nær félagsmönnum „ gera þau aðgengnilegri til dæmis fyrir ungt fólk, við erum náttúrulega eins og önnur samtök, með vefsíðu og Facebook síðu og ég tel að við þurfum að nýta okkur tæknina betur eins og þessi snjalltæki sem býður upp á tól sem getur verið mjög öflugt og þess vegna hef ég sett fram það sem stefnumið að það verði gefið út neytendaapp fyrir félagsmenn í Neytendasamtökunum, þetta verður app sem menn geta verið með í símanum sínum og í því verði til dæmis að einhverju leyti neytendakannanir á vegum samtakanna„,segir Ólafur.