Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir til liðs við kosningaútvarpið á Útvarpi Sögu

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Dr.Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þjóðfræðingur, fjölmiðlakona og fyrrverandi þingmaður er nýr liðsmaður kosningaútvarpsins á Útvarpi Sögu. Eins og flestum er kunnugt hefur Ólína yfirgripsmikla þekkingu á stjórnmálum líðandi stundar en hún sat á þingi fyrir Samfylkinguna á árunum 2009-2013 og aftur árið 2015. Fyrsti þáttur Ólínu er á dagskrá í dag kl.17:00 þar sem heilbrigðismálin verða í brennidepli en gestir hennar verða Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Jóna Sólveig Elínardóttir þingmaður Viðreisnar og Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila