Opna nýtt gagnvirkt þjónustukort sem gefur yfirsýn yfir almenna þjónustu hjá hinu opinbera um allt land

Skjáskot af kortinu

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynntu nýtt gagnvirkt þjónustukort á blaðamannafundi í Þjóðminjasafninu í dag. 

Kortið sýnir almenna þjónustu hins opinbera og einkaaðila um land allt með myndrænum hætti og hefur Byggðastofnun opnað aðgang að kortinu. Markmiðið með kortinu er að auka og bæta aðgengi almennings að upplýsingum um þjónustu víðsvegar um landið og auka tækifæri til nýsköpunar og frekari stefnumótunar á sviði byggðamála.

Í tilkynningu segir að upplýsingar um margháttaða þjónustu á vegum ríkisins séu þegar komnar inn á kortið. Einnig upplýsingar um ýmsa þjónustu á vegum sveitarfélaga og einkaaðila. Unnið sé að því að skrá fleiri þjónustuþætti sveitarfélaga inn á kortið og verður í framhaldinu lögð áhersla á að skrá þjónustu á vegum einkaaðila.

Upplýsingar á kortinu verða uppfærðar reglulega og komið verður á tengingum við aðra opinbera gagnagrunna þar sem þess er kostur. Þá er stefnt að því að hægt verði að sjá hversu langt er í tiltekna þjónustu út frá gefinni staðsetningu. Einnig stendur til að þýða flokkaheiti í kortinu yfir á önnur tungumál svo kortið verði aðgengilegt fyrir sem flesta.

Þá segir í tilkynningunni að mikil áhersla sé lögð á að gögnin sem safnast séu opin og fljótlega verður opnuð niðurhalssíða þar sem hægt verður að sækja gagnasett sem liggja að baki kortinu. Þannig nýtast upplýsingarnar öllum almenningi endurgjaldslaust, s.s. til ýmis konar nýsköpunar í atvinnulífinu eða úrvinnslu og miðlunar t.d. á sviði ferðaþjónustu, opinberrar stjórnsýslu eða í menntakerfinu.

Fullgert verður þjónustukortið fyrsta kort sinnar tegundar sem veitir aðgang að heildstæðum þjónustuupplýsingum um land allt. Smelltu hér til þess að skoða kortið.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila