Orka náttúrunnar sektuð vegna saknæmrar háttsemi

Orkustofnun hefur gert Orku náttúrunnar að greiða eina milljón í sekt vegna saknæmrar háttsemi við tæmingu á lóni um botnloku á stíflu Andakílsárvirkjunnar. Tæmingin var framkvæmd 15-19.maí á þessu ári en fram kemur í tilkynningu Orkustofnunar vegna málsins að umrædd framkvæmd hafi verið háð leyfi bæði Orkustofnunar, samkvæmt ákvæðum vatnalaga og Fiskistofu, samkvæmt ákvæðum laga um lax- og silungsveiði. Leyfa var ekki aflað. Að mati Orkustofnunar hafi starfsmenn ON sýnt af sér verulegt gáleysi við tæmingu lónsins. Þá segir í tilkynningunni að ákvörðun Orkustofnunar byggi á því að tilskilinna leyfa hafi ekki verið aflað og því hafi framkvæmd tæmingarinnar verið ólögmæt. Auk þess segir í tilkynningunni að “ starfsmönnum ON hafi borið að sýna sérstaka aðgæslu og varkárni við tæmingu lónsins, fylgjast með mögulegum aurburði og grípa inn í atburðarásina til að koma í veg fyrir að aur bærist í Andakílsá. Þeir hafi sýnt af sér andvaraleysi með athafnaleysi sínu, að bregðast ekki við því sem augljóst mátti vera með tilliti til sérþekkingar þeirra og reynslu og því sýnt af sér verulegt gáleysi. Það sé ámælisvert að líta á aðgerðina sem hefðbundið rekstrarverk, en ekki sem þátt í ástandsmati stíflunnar sem lúta þyrfti sérstakri verkefnisstjórn.“

Smelltu hér til þess að lesa úrskurðinn í heild

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila