Páll Magnússon segist tortrygginn gagnvart orkupakka Evrópusambandsins og hann vilji fá meiri upplýsingar, lögfræðiálit og skjöl áður en það takist að sannfæra hann að samþykkja að Ísland gangi að samningnum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Páls í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Páll segir að hann telji að hagsmunum Íslands væri betur borgið utan sameiginlegs orkukerfis Evrópusambandsins eins og sakir standa, hvað varðar samþykkt orkupakkans bendir Páll á að hægt væri að fara aðrar leiðir í þeim efnum „ það væri til dæmis hægt að setja þetta mál í þjóðaratkvæði„,segir Páll. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.