Parið úrskurðað í gæsluvarðhald vegna vændismálsins

Parið sem handtekið var í gær í þágu rannsóknar á umfangsmikilli vændisstarfsemi var í dag úrskurðað í gæsluvarðhald til 6.desember næstkomandi. Eins og fram hefur komið var parið handtekið í kjölfar húsleitar þar sem hald var lagt á tölvubúnað og símagögn. Þá rannsakar lögreglan hvort fólkið hafi gert út konur í þeim tilgangi að stunda vændi. Ekki liggur fyrir hvort parið ætli að áfrýja úrskurðinum til Hæstaréttar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila