Ekkert lát er á krafti Gulu Vestanna sem héldu í dag út á götur Parísar og annarra stórborga í Frakklandi 23. vikuna í röð. Áfallið með Notre Dame virðist hafa horfið eftir að auðkýfingar lofuðu milljörðum króna til að endurbyggja kirkjuna. Skyndilegur fjáraustur auðkýfinganna hefur skapað reiði margra eins og Útvarp Saga hefur greint frá. Um 60 þúsund lögreglumenn voru sendir gegn Gulu Vestunum þar af 5 þúsund í París. Mótmælendum var skipað að halda sér frá Notre Dame og skjótt eftir að mótmælin hófust hafði lögreglan handtekið yfir 120 manns í París. Í austurhluta Parísar var kveikt í bílum og mótórhjólum. Christophe Castaner innanríkisráðherra sagði í gær að hann teldi að öfgasinnar og skemmdarverkamenn myndu efna til uppþota, íkveikju og eyðileggingar.
Ingrid Levavasseur einn mótmælenda sagði: „Þeir geta komið með peningahlöss á einni nóttu fyrir Notre Dame en þeir geta ekki veitt fátækum aðstoð.“ Nicolle Maxime vörubílsstjóri frá Brittany sagði á þriðjudaginn: „Jörðin snýst áfram, fólk nær ekki endum saman fyrir mánaðarmótin, fólk sefur úti á götum og um það snýst barátta okkar.“ Fjöldi Gulu Vestanna skiptir tugum ef ekki hundruðum þúsundum með stuðningi langtum fleiri og þótt Frakklandsforseta hafi tekist að fá samúð út á dómkirkjubrunann gæti sá eldur sem logar í hjörtum Gulu Vestanna að endingu fellt hann úr embætti.
Sjá nánar hér