Ráðherrafundur EFTA ríkjanna haldinn á Sauðárkróki

Ráðherrar, þingmenn og samstarfsaðilar aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) koma saman til árlegs sumarfundar 25. júní æstkomandi.
Fundurinn fer að þessu sinni fram á Sauðárkróki.
Guðlaugur Þór Þórðarsson mun stýra fundinum en Ísland fer um þessar mundir með formennsku í EFTA.

Fulltrúar aðildarríkjanna og EFTA á ráðherrafundinum verða:

  • Ísland: Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra (fundarstjóri)
  • Liechtenstein: Aurelia Frick, utanríkisráðherra
  • Noregur: Torbjørn Røe Isaksen, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
  • Sviss: Johann N. Schneider-Ammann, ráðherra efnahagsmála, menntunar og rannsókna í sambandsstjórn Sviss.
  • EFTA: Kristinn F. Árnason framkvæmdastjóri EFTA-samstarfsins.

Áframhaldandi þróun fríverslunarsamninga um allan heim og samskiptin við Evróupsambandið verða efst á baugi á sumarfundinum á Sauðárkróki. Ráðherrarnir funda annars vegar með þingmannanefnd EFTA og hins vegar ráðgjafarnefndinni.
Á dagskránni eru staða og horfur í samstarfinu um Evrópska efnahagssvæðið (EES), fríverslunarnet EFTA sem er í stöðugum vexti og samskipti Sviss og Evrópusambandsins. Fulltrúar EFTA-dómstólsins og Eftirlitstofnunar EFTA (ESA) sækja einnig ráðherrafundinn.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila