Ráðist á lögreglumenn við skyldustörf

Maður í annarlegu ástandi réðist á lögreglumenn við Grensásveg í dag með þeim afleiðingum að annar lögreglumannanna slasaðist talsvert. Lögreglumennirnir höfðu verið kallaðir til vegna mannsins sem eins og fyrr segir var í annarlegu ástandi og ætluðu að hafa afskipti af honum. Maðurinn brást ókvæða við og réðist að lögreglumönnunum með þeim afleiðingum að maðurinn og lögreglumennirnir félli í götuna og skall annar lögreglumaðurinn harkalega með höfuðið í jörðina. Lögreglumaðurinn sem slasaðist var fluttur á sjúkrahús og er talsvert slasaður, þó ekki lífshættulega.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila