Ráðist í aðgerðir til að auðvelda ungu fólki fyrstu húsnæðiskaup

Ráðist verður í sértækar aðgerðir til að gera ungu og tekjulágu fólki kleift að kaupa sér íbúðarhúsnæði. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, um skipun starfshóps sem á að útfæra ákveðnar aðgerðir í þessu skyni sem gefist hafa vel hjá grannþjóðum.
 Í tilkynningu segir að ákvörðunin sé í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem sérstaklega kveðið sé á um að ríkisstjórnin muni fara í aðgerðir til að lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkaðinn og endurskoða í því skyni stuðningskerfi hins opinbera þannig að stuðningurinn nýtist fyrst og fremst þessum hópum. Meðal annars verði skoðaðir möguleikar á því að nýta lífeyrissparnað til þessa.
Þá segir að fyrir liggi að ójafnræði á húsnæðismarkaði hafi farið vaxandi hér á landi á síðustu árum og staða tekju- og eignalágra á markaðnum hafi þannig versnað. Einnig segir að  vísbendingar séu um að sá húsnæðisstuðningur sem standi fólki til boða gagnist tekjulágum ekki sem skyldi. Vaxtabætur gagnist fólki til að mynda ekki við öflun eigin fjár en skortur á eign fé virðist vera stærsta fyrirstaða tekjulágra við húsnæðiskaup um þessar mundir. Tekjulágar fjölskyldur safna síður séreignasparnaði en tekjuháar og geti því síður nýtt sér heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar hans við íbúðakaup.
Velferðarráðuneytið í samvinnu við Íbúðalánasjóð hefur um skeið unnið að kortlagningu ýmissa úrræða sem stjórnvöld í nágrannalöndum okkar bjóða tekjulágum á húsnæðismarkaði og hafa gefið góða raun. Þessi kortlagning hefur beint sjónum sérstaklega að tilteknum leiðum sem farnar hafa verið í Sviss og Noregi.
Ásmundur Einar segir tíma aðgerða að renna upp: „Nú er mikil greiningarvinna að baki og komið að því að stíga fyrstu skref til aðgerða. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að kalla fleiri að borðinu til að útfæra þær nánar og hrinda þeim í framkvæmd“ segir ráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila