Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, átti í gær hádegisverðarfund með Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu. Utanríkisráðherrar og fjármálaráðherrar beggja landa tóku þátt í fundinum. Á fundi sínum fóru þeir yfir góð samskipti Íslands og Slóvakíu og ræddu m.a. um stjórnmálaástandið, stöðu efnahagsmála, vinnumarkaðsmál og viðskiptamál. Þá var útganga Bretlands úr Evrópusambandinu til umfjöllunar og rætt um samvinnu Íslands og Slóvakíu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, Atlantshafsbandalagsins og Öryggis- og Samvinnustofnunar Evrópu.
Forsætisráðherra Slóvakíu ásamt fylgdarliði, sem var í stuttri heimsókn á Íslandi heldur af landi brott í dag 17. júní.