Rafrænt lyfjaumsjónarkerfi hlaut opinberu nýsköpunarverðlaunin

Verkefnið ALFA – rafrænt lyfjaumsjónarkerfi hlaut nýsköpunarverðlaunin í opinberri þjónustu og stjórnsýslu 2018 sem veitt voru á ráðstefnu opinberrar þjónustu á dögunum. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn. Yfirskrift ráðstefnunnar í ár var „Betri opinber þjónusta með öflugu samstarfi og nýtingu stafrænna lausna“. Alls voru 33 verkefni tilnefnd til nýsköpunarverðlaunanna.
Verkefnið sem bar sigur úr býtum er samvinnuverkefni Öldrunarheimila Akureyrar, Akureyrarkaupstaðar, Lyfjavers ehf. og Þulu – Norræns hugvits.

ALFA sem er stafræn lausn á lyfjaumsjónarkerfi var þróuð í þeim tilgangi að einfalda lyfjaskráningu, utanumhald á lyfjalager og samskipti á milli öldrunarheimila og birgja. Fram kemur í umsögn að verkefnið hafi leitt til mikillar hagræðingar og umbóta í rekstri öldrunarheimila.

Fjögur verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu á ráðstefnunni:

  1. Vatnajökulsþjóðgarður fyrir „Sjálfvirk innheimta og aðgangsstýring“;
  2. Ísafjarðarbær fyrir „Blábankinn, samfélagsmiðstöð á Þingeyri“;
  3. Kópavogsbær fyrir „Social Progress Portrait; Mælikvarði á félagslegar framfarir í Kópavogi og MÆLKÓ“
  4. Skútustaðahreppur fyrir „Umbótaáætlun í fráveitumálum í Mývatnssveit“.

Ráðstefnan var mjög vel sótt en skráðir voru rúmlega 190 þátttakendur frá um hundrað stofnunum, sveitarfélögum og fyrirtækjum. Ráðstefnan er samstarfsverkefni fjármála- og efnahagsráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Félags forstöðumanna ríkisstofnana, Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila