Rán býður sig fram til formanns Neytendasamtakanna

Rán Reynisdóttir

Rán Reynisdóttir hársnyrtimeistari hefur ákveðið að gefa kost á sér formannsembættið hjá Neytendasamtökunum Rán er fjögurra barna móðir og og hársnyrtimeistari eins og fyrr segir. Í tilkynningu um framboðið segir Rán „Ég þekki af eigin raun hversu varnarlausir neytendur eru án öflugrar hagsmunagæslu og öflugrar verndar, sem aðeins næst með samstöðu almennings,“ segir Rán. „Þegar ég heyrði af hópi fólks með brennandi áhuga fyrir að stórefla Neytendasamtökin og efla samstöðu neytenda gat ég ekki annað en slegist í lið með þeim. Við bætum ekki samfélagið nema með því að taka þátt, bretta upp ermar.

Þá segir Rán að markmið hópsins sé að vinna á næstu vikum áætlun til eflingar Neytendasamtakanna. Það liggi fyrir að vilji sé innan verkalýðshreyfingarinnar að efla hagsmunagæslu almennings og því sé mikilvægt að tengja Neytendasamtökin við þá vakningu. Þá sé einnig mikilvægt að efla félagslegt starf Neytendasamtakanna og efna til öflugrar umræðu svo hægt sé að endurnýja stefnu og markmið samtakanna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila