Rannveig Sigurðardóttir skipuð aðstoðarseðlabankastjóri

Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa Rannveigu Sigurðardóttur í embætti aðstoðarseðlabankastjóra til fimm ára frá og með 1. júlí 2018.

Fjórtán sóttu um embættið sem auglýst var laus til umsóknar 21. febrúar sl. Tveir umsækjendur drógu umsókn sína til baka og einn umsækjandi uppfyllti ekki almenn hæfnisskilyrði laga um Seðlabanka Íslands. Sérstök matsnefnd var skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Nefndin mat fimm umsækjendur mjög vel hæfa til þess að hljóta embætti aðstoðarseðlabankastjóra, þau Daníel Svavarsson, Guðrúnu Johnsen, Jón Þ. Sigurgeirsson, Rannveigu Sigurðardóttur og Þorstein Þorgeirsson.

Rannveig Sigurðardóttir lauk fil. kand. prófi og meistaraprófi í hagfræði frá Gautaborgarháskóla og stundaði þar doktorsnám. Hún hefur frá árinu 2009 starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs Seðlabanka Íslands og verið ritari peningastefnunefndar, ásamt því að vera staðgengill aðalhagfræðings bankans.

Rannveig starfaði áður sem hagfræðingur BSRB í um áratug og var aðalhagfræðingur ASÍ á árunum 1999-2002.
Hún var ráðgjafi aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands á árunum 2002-2004 og hefur verið forstöðumaður greiningar- og útgáfudeildar á hagfræði- og peningastefnusviði Seðlabanka Íslands síðastliðin 14 ár. Auk þess að stunda rannsóknir og kennslu hefur Rannveig ritað fjölda greina um efnahags- og peningamál og skyld efni.  Forsætisráðuneytið hefur birt endanlega umsögn matsnefndar um hæfni umsækjenda sem barst ráðuneytinu 12. júní sl. Ráðuneytið mat það svo að ekkert í umsögninni væri þess eðlis, með hliðsjón af sjónarmiðum um einkalífsvernd umsækjenda, að óheimilt væri að birta hana. Ráðuneytið hafði til hliðsjónar þau sjónarmið sem lúta að gagnsæi og aðhaldi gagnvart stjórnvöldum við ákvarðanatöku um skipan í þýðingarmikil opinber embætti.

Smelltu hér til þess að skoða hæfnismat umsækjenda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila