Réttindi íslenskra ríkisborgara tryggð eftir Brexit

Frá undirritun samningsins.

Samningaviðræðum er lokið á milli EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland um áframhaldandi búseturéttindi borgara ef útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verður ekki samþykktur.

Með þessum samningnum eru íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru í Bretlandi og Bretum búsettum á Íslandi fyrir útgöngudag tryggð réttindi til áframhaldandi búsetu gangi Bretland úr ESB án samnings.
Fram kemur í tilkynningu að undir lok nýliðins árs hafi samningaviðræðum EFTA-ríkjanna innan EES við Bretland vegna útgönguskilmála Bretlands úr ESB og Evrópska efnahagssvæðinu lokið og að sá  samningur verði eingöngu undirritaður ef útgöngusamningurinn milli Bretlands og ESB verður samþykktur og taki gildi.
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fagnaði því að samkomulag væri í höfn; „Íslensk stjórnvöld hafa undirbúið sig fyrir mismunandi sviðsmyndir meðal annars þann möguleika að Bretland gangi úr ESB án samnings. Þetta er mikilvægur áfangi í þeirri vinnu sem tryggir réttindi íslenskra og breskra ríkisborgara óháð því hvort viðræðum Bretlands og ESB ljúki með samningi þeirra á milli.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila