Starfshópur sem ríkið og Reykjavíkurborg skipaði 11. janúar sl. um uppbyggingu Laugardalsvallar hefur nú skilað af sér niðurstöðum. Hópurinn fór yfir hugmyndir um þjóðarleikvang fyrir knattspyrnu, lagði mat á þær og gerði tillögur um mögulega uppbyggingu Helstu niðurstöður hans eru eftirfarandi og má sjá hér að neðan:
- Margt mælir með því að núverandi þjóðarleikvangur í Laugardal verði endurnýjaður.
- Ríkið, Reykjavíkurborg og KSÍ stofni undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd og taki upp viðræður um eignarhald á þjóðarleikvangnum.
- Undirbúningsfélagið bjóði út samning um endanlega þarfagreiningu, skipulagningu verkefnisins, kostnaðaráætlun og gerð útboðsgagna.
- Þjóðarleikvangur getur hvort heldur sem er verið opinn knattspyrnuvöllur eða fjölnotaleikvangur með opnanlegu þaki.
- Kostnaður og áhætta við fjölnotaleikvang er vel umfram kostnað og áhættu við opinn knattspyrnuvöll.
- Ákvörðun um byggingu og eignarhald þjóðarleikvangs verði tekin með hliðsjón af niðurstöðu vinnu undirbúningsfélags og stöðu opinberra fjármála.
- Áætlað er að undirbúningi fyrir ákvörðun verði lokið í lok árs 2018.
- Verði tekin ákvörðun um byggingu þjóðarleikvangs getur útboðsferli framkvæmda tekið frá nokkrum mánuðum og upp undir eitt ár og framkvæmdatími verið að minnsta kosti tvö ár.
- Huga verður að mögulegu fordæmi ákvörðunar um byggingu þjóðarleikvangs fyrir aðrar íþróttagreinar með hliðsjón af væntanlegri reglugerð um þjóðarleikvanga.
- Hvetja ætti til opinnar umræðu um byggingu þjóðarleikvangs á grundvelli þeirra ítarlegu gagna sem tekin hafa verið saman á undanförnum misserum.
Ríkisstjórn, borgarráð og stjórn KSÍ hafa samþykkt að stofna undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd. Undirbúningi fyrir ákvörðun um uppbyggingu Laugardalsvallar skal lokið fyrir lok árs 2018.