Unnið að Grænum skrefum í ríkisrekstrinum

Heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa fengið viðurkenningu fyrir að ná Grænum skrefum 3 og 4

Heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa hlotið viðurkenningu fyrir að ná svokölluðum Grænum skrefum 3 og 4 samkvæmt áætlun verkefnisins Græn skref í ríkisrekstri.

Grænu skrefin felast í litlum og stórum aðgerðum til að draga úr sóun og mengun og snúast um að efla vistvænan rekstur ríkisins á kerfisbundinn hátt.

Þau eru jafnframt liður í því að innleiða loftslagsstefnu Stjórnarráðsins sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnarinnar 9. apríl síðastliðinn.

Fram kemur í tilkynningu að öll ráðuneytin og Rekstrarfélag Stjórnarráðsins vinni að innleiðingu grænna skrefa í ríkisrekstri.

Sem dæmi um verkefni sem hrint hefur verið í framkvæmd í ráðuneytum má nefna innleiðingu prentskýja sem draga úr pappírsnotkun, flokkun úrgangs, samgöngusamninga, aðstöðu fyrir hjólandi, tilboð um deilibíl, rafhjólatilraun og innkaup á ýmsum umhverfisvottuðum vörum.

Heilbrigðisráðuneytið og félagsmálaráðuneytið sem eru með aðsetur í sama húsi hafa unnið saman að innleiðingu grænu skrefanna. Þess má einnig geta að þau hafa bæði hlotið gullvottun fyrir að vera hjólavænn vinnustaður.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila