Svo virðist sem að áralöng spenna milli Norður og Suður Kóreu sé mun minni nú en verið hefur frá upphafi deilunnar. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Hauks Haukssonar fréttamanns í Moskvu í síðdegisútvarpinu í dag en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar. Haukur segir að rekja megi þessi batnandi samskipti ríkjanna til ólympíuleikanna sem fram fara í Pyeongchang í Suður Kóreu í næsta mánuði. Samninganefndir ríkjanna komu saman á dögunum þar sem möguleg þátttaka Norður Kóreu var rædd en þetta er í fyrsta sinn í tvö ár sem fulltrúar ríkjanna ræðast við. Hlusta má á þáttinn hér að neðan.