Rósa Björk kjörin varaforseti Evrópuráðsþingsins

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur verið kosin einn af varaforsetum Evrópuráðsþingsins, en janúarfundur þingsins stendur nú yfir í Strassbourg. Meginhlutverk varaforseta er að stýra þingfundum í fjarveru þingforseta en á þinginu sitja 318 þingmenn sem fulltrúar rúmlega 800 milljóna Evrópubúa. Alþingi Íslendinga hefur átt aðild að þinginu frá 1950 sem er samstarfsvettvangur þingmanna frá 47 Evrópulöndum. Markmið Evrópuráðsins er að standa vörð um hugsjónir aðildarríkjanna; mannréttindi og lýðræði. Í tilkynningu segir að Evrópuráðs­þingið hafi meðal annars haft frumkvæði að samningu fjölþjóðlegra sáttmála á borð við Mannréttinda­sáttmála Evrópu og Félagsmála­sáttmála Evrópu. Að auki er Evrópuráðs­þingið mikilvægur umræðu­vettvangur fulltrúa evrópskra þjóðþinga um stjórnmál, efnahagsmál, félagsmál, mannréttindamál, umhverfismál, vísindi, menningar- og menntamál.  Rósa Björk er jafnframt formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins en í henni sitja líka þingmennirnir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Bergþór Ólason.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila