Við erum á viðsjárverðum tímum hvað varðar stöðu fjölmiðla og ljóst að RÚV er við það að ýta einkareknum fjölmiðlum fram af brúninni. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Páls Magnússonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi Útvarpsstjóri RÚV í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Páll segir að hann sé ánægður að sjá tillögur menntamálaráðherra sem ætlað er að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla “ ég skal orða það þannig að ég er ánægður með þessa viðleitni en við eigum alveg eftir að sjá hvernig útfærslan á þessu verður, það verður allt að koma í ljós, ég held að staðan sé einfaldlega sú að einkareknu fjölmiðlarnir hafa aldrei verið í verri stöðu en nú, það kemur bæði til af uppgangi samfélagsmiðla og veru RÚV á auglýsingamarkaði, ef ekkert verður að gert þá deyja einkareknu miðlarnir, það er staðan„,segir Páll. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.