Sænski öryggissérfræðingurinn Dick Malmlund gerir sívaxandi glæpatíðni í Svíþjóð að umfjöllunarefni í nýjum pistli sínum í Expressen, en í pistlinum hvetur hann stjórnmálamenn til þess að taka á vandanum. Hann segir nauðsynlegt að taka á vandanum með þeim hætti að stjórnmálamenn afli vitneskju um ástandið með því að eiga samtal við þá sem standa í eldlínunni. Þá fer Dick yfir þá tölfræði sem hefur verið tekin saman yfir daglega glæpi „Í dag verður ein manneskja myrt, 18 konum nauðgað, 24 verða fórnarlömb rána, 33 bílum verður stolið, 241 einstaklingum á öllum aldri verður misþyrmt , brotist verður inn í 243 fyrirtæki og heimili, þar að auki eiga sér stað 778 aðrir óskilgreindir þjófnaðir. Allt þetta mun gerast áður en deginum lýkur. Á morgun verður álíka endurtekning, svona er venjulegur dagur í Svíþjóð samkvæmt tölfræðinni“ segir Dick.
Smelltu hér til þess að lesa frétt Expressen