Samkomulag um byggingu nýrra hjúkrunarrýma í Boðaþingi undirritað

krani2Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar og Theodóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs undirrituðu sl. föstudag samkomulag um byggingu 64 rýma hjúkrunarheimilis í Boðaþingi. Það mun rísa á lóð Kópavogsbæjar í Boðaþingi og verður tengt við byggingu með 44 hjúkrunarrýmum sem fyrir er á lóðinni. Stefnt er að því að taka heimilið í notkun á seinni hluta árs 2018.
Heildarkostnaður við hjúkrunarheimilið er áætlaður 1.430 milljónir króna. Kostnaðurinn skiptist þannig að 85% greiðist af velferðarráðuneytinu og 15% af Kópavogsbæ. Til viðbótar þessum kostnaði fellur til kostnaður við kaup á búnaði og greiðist hann í sömu hlutföllum og byggingin.
Skipaður verður fjögurra manna starfshópur með fulltrúum heilbrigðisráðherra og Kópavogsbæjar. Fyrsta verkefni þess hóps verður að vinna áætlun um fullnaðarhönnun hjúkunarheimilisins í samræmi við lög um um skipan opinberra framkvæmda. Þegar fullnaðarhönnun liggur fyrir verður leitað heimildar til verklegra framkvæmda hjá samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist snemma árs árið 2017 og að taka megi heimilið í notkun í lok árs 2018.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila