Samkomulag við japönsk yfirvöld greiðir fyrir beinum flugsamgöngum

Sendinefnd utanríkisráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis áttu viðræður við fulltrúa samgönguráðuneytis Japans í Tókýó í gær um gagnkvæm loftferðasamskipti. Á fundinum náðist samkomulag sem greiðir fyrir beinu áætlunarflugi milli Íslands og Japans, auk frekari möguleikum á leiguflugi. Jafnframt var ákveðið að löndin skyldu ræða áfram um mögulegan loftferðasamning milli landanna. Að auki áttu fulltrúar íslenskra flugrekenda fundi með japönskum flugfélögum. Á þeim fundum kom fram vilji til aukins samstarfs.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila