Samningur um lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur endurnýjaður

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttisráðherra, Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands og Tatjana Lationvic, formaður innflytjendaráðs ræddu ýmis málefni innflytjenda á fundi í gær þegar endurnýjaður var samingur um lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur.
Fram kemur í tilkynningu að Mannréttindaskrifstofan hafi um árabil annast slíka ráðgjöf, innflytjendum að kostnaðarlausu, á grundvelli samnings við velferðarráðuneytið. Þá segir að fengin reynsla sýni að veruleg þörf er fyrir þjónustuna. Ráðgjafarviðtöl á síðasta ári voru 544 og voru ýmist veitt á skrifstofu samtakanna eða í gegnum síma. Mest er óskað eftir ráðgjöf vegna umsókna um dvalar- og atvinnuleyfi og varðandi  fjölskyldurétt, einkum vegna skilnaðar- forsjár- og umgengnismála, en ýmis önnur mál koma einnig við sögu, svo sem ráðgjöf og ýmis önnur mál sem snúa að félagslegum réttindum innflytjenda.
Á fundinum var fjallað almennt um helstu áskoranir sem lúta að stöðu innflytjenda og má þar nefna stöðu innflytjenda á vinnumarkaði sérstaklega. Kom meðal fram að vonir standi til að jafnlaunavottunin muni tryggja að innflytjendur njóti sömu launa fyrir sömu vinnu óháð uppruna eða þjóðerni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila