Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf nýverið almennt samráð vegna fyrirhugaðra breytinga á heilsugæslu og umönnun sem snerta rafræn samskipti og aðgang að rafrænum heilsufarsskrám en samráðið mun standa yfir til 16. ágúst næstkomandi. Fram kemur í tilkynningu að tekið verði á atriðum er varða framtíðarmarkmið og aðgerðir á sviði fjarskipta í heilsugæslu og umönnun og hvernig tryggja eigi aðgang borgara að rafrænum sjúkraskrám sínum og rafrænum lyfseðlum. Þá verður fjallað um nokkra möguleika í stefnumótun og hvernig hægt væri að þróa þá í samræmi við löggjöf um gagna- og persónuvernd, réttindi sjúklinga og rafræn auðkenni.