Samstarf Íslands og Noregs heldur áfram að eflast

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra Íslands og Ine Marie Eriksen Søreide utanríkisráðherra Noregs.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, átti í vikunni fund með Ine Marie Eriksen Søreide, utanríkisráðherra Noregs, í tengslum við utanríkisráðherrafund Atlantshafsbandalagsins. Ráðherrarnir ræddu um tvíhliða samskipti landanna, áherslur nýrra ríkisstjórnaí utanríkismálum, fríverslunarmál, þróun öryggismála í Evrópu og Norður-Atlantshafi og samstarf innan Atlantshafsbandalagsins.„Ég er sannfærður um að samskipti Íslands og Noregs munu halda áfram að eflast í tíð þessara ríkisstjórna, enda deilum við sömu sýn þegar það kemur að öryggismálum í Evrópu og á norðanverðu Atlantshafi, sem og sjálfbærri og friðsælli þróun á norðurslóðum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila