Samtök fjármögnuð af George Soros á bak við loftslags-Grétu

Sænskir miðlar hafa skrifað um skjótan framgang unglingsstúlkunnar Greta Thunberg sem á örskömmum tíma varð heimsfræg og fjölmiðlaefni út um allan heim. Blaðið Nýir Tímar bendir á að samtök studd af auðkýfingnum George Soros standi að baki Grétu og spyr: „Er sænska loftslags-Gréta bara venjuleg stúlka sem vill bjarga jörðinni – eða stúlka sem lyft er fram í sviðsljósið af sterkum alþjóðlegum öflum?“ Greta „Loftslags-Gréta“ Thunberg er heimsfræg fyrir baráttuna fyrir lægra hitastigi á jörðunni sem hófst þegar hún sat fyrir utan sænska þinghúsið og mótmælti heitara veðri. Fáum datt í hug að bráðum myndi hún hitta páfann, tala á fundi Sameinuðu þjóðanna og verða tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels.

Hver er þessi ofurkynnti unglingur? Móðir hennar er þekkt óperusöngkona og vinstrirótæklingur sem gaf út bók um lofstlagið skömmu áður en dóttirin varð heimsfræg og fékk bókin mikla auglýsingu og sölu í kjölfarið. Loftslags-Gréta hefur persónulegan ráðgjafa Luisa-Marie Neubauer, sem er þekkt þýzk baráttukona gegn loftslagsbreytingum. „Hversu líklegt er það að 16 ára unglingur sem sest fyrir utan þinghúsið fái skólakrakka í öllum heiminum til að fara í verkfall fyrir loftslagið? Og hversu algengt er það að 16 ára unglingar hafi sinn eigin ráðgjafa?“ Luisa-Marie Neubauer sem sést á fjölda mynda með Grétu er frá samtökunum „One foundation“ sem fjöldi nafnþekktra einstaklinga styðja fjárhagslega eins og t.d. Bono og Bill og Melissa Gates – sem og margmilljarðamæringurinn George Soros – þekktur fyrir gjaldeyrisbrask og alþjóðlegu vinstri róttæku samtökin „Open Society“. Þá segir Piers Corbyn skv. Daily Mail að Gréta sé „heilaþvegið barn sem sé misnotað af fullorðnum með óheiðarlegum aðferðum“. Segir hann að Greta Thunberg sé „misnotuð fyrir markmið glóbalista í heiminum.“

Sjá nánar hér og hér

Gréta ásamt persónulega ráðgjafa sínum Luisa-Marie Neubauer frá „One foundation“

Pieers Corbyn sem er bróðir stjórnmálamannsins Jeremy Corbyn mótmælir því að verið sé misnota barn vegna alheimsmarkmiða glóbalista

Tania Groth tístir með samsettri mynd af Soros og Gretu: „Það sem er raunverulega að gerast“ 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila