Lögreglustjóri Svíþjóðar Dan Elíasson greindi frá því á blaðamannafundi í morgun að lögreglan telji að um 5000 glæpamenn starfi í 200 glæpahópum á því 61 svæði sem lögreglan segir á valdi glæpamanna og að svæðunum fari hratt fjölgandi. Í grein í Dagens Nyheter í dag skrifar lögreglustjórinn að það muni taka að öllum líkindum mörg ár að ná stjórn á svæðunum á ný og nauðsynlegt sé að fá meira fé og stuðning frá stjórnvöldum til þess að takast á við vandann. Átta ný svæði hafa bæst við svæðin sem eru í Gautaborg, Borås, Stokkhólmi, Uppsala, Landskrona og Malmö. Lögregluyfirvöld í Svíþjóð telja sig ekki lengur ráða við að halda uppi lögum og reglu á þessum svæðum og segja að fólk þori ekki að starfa með yfirvöldum af ótta við hefndaraðgerðir glæpamanna.