Segir brýna nauðsyn að byggja upp innviði ferðaþjónustunnar

pallmagnussonfrettaPáll Magnússon oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi segir það brýna nauðsyn að byggja upp þá innviði sem snúa að ferðaþjónustu á Suðurlandi. Páll sem var gestur Péturs Gunnlaugssonar segir að ef innviðirnir, eins og til dæmis samgöngur, heilbrigðismál og löggæslu verði ekki bættir geti það haft alvarlegar afleiðingar „ ef þetta verður ekki gert þá fer þessi góða tekjulind sem þessir ferðamenn að fara í taugarnar á íbúum svæðisins vegna þess að þeir verða af ákveðinni grunnþjónustu sem þeir annars fá, í móttökunni á spítalanum á Selfossi er það orðið þannig að heimamenn komast varla að fyrir ferðamönnum yfir mesta ferðamannatímann„,segir Páll.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila