Segir Dag B. Eggertsson hafa misst metnaðinn

Jón Kristinn Snæhólm alþjóðastjórnmálafræðingur.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur misst metnaðinn fyrir starfi sínu og forðast að svara fyrir það sem fer úrskeiðis í starfsemi borgarinnar. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Jóns Kristins Snæhólm alþjóðastjórnmálafræðings frá Edinborgarháskóla í síðdegisútvarpinu í dag en hann var gestur Péturs Gunnlaugssonar. Jón bendir á máli sínu til stuðnings að margt sé í ólestri í borginni eins og samgöngur, húsnæðismál og umhirða og þegar krefja eigi Dag svara séu aðrir látnir svara fyrir hann “ Dagur er ekki sýnilegur, hann kemur ekki fram fyrir hönd borgarinnar og hann virðist hafa misst metnaðinn, borgin er stútfull af holóttum vegum og veggjakroti, það er ekkert gert í þessu, það er ekkert samráð haft við íbúasamtök, það er órækt og arfi um allt og þetta sýnir að borgarstjóri hafi ekki mikinn metnað fyrir hönd borgarinnar„,segir Jón Kristinn.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila