Kári Stefánsson læknir og erfðafræðingur segist þeirrar skoðunar að einkaframtakið eigi að skapa mest af þeim verðmætum sem til verða í samfélaginu og sé með þeim hætti hvati til þess að menn skili árangri. Kári sem var gestur Hauks Haukssonar í síðdegisútvarpinu í vikunni segir að þó verði að gæta þess að velmegun sumra verði ekki til þess að misskipting verði ekki mikil “ ég man að faðir minn lagði fram þingsályktunartillögu þess efnis að það yrði ekki leyfður meiri en tvöfaldur launamunur í íslensku samfélagi og tók þá sitt viðmið af sjónum þar sem skiptstjórinn fékk tvo hluti en hásetinn einn, ég veit ekki hvort að það sé auðvelt að koma á þannig kerfi og ég veit ekki hvort að það sé réttlátt að koma á þannig kerfi en þetta var hugsun sem hann tjáði á þennan hátt og mér finnst hún flott og virðingarverð„.