Segir erlenda kröfuhafa haldna miklum ranghugmyndum

smarimccarthyfretta2Smári McCarthy oddviti Pírata í Suðurkjördæmi segir erlenda kröfuhafa haldna ranghugmyndum haldi þeir að þeir fái betri meðferð af hálfu ríkisstjórnar Pírata komist þeir til valda. Smári sem var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur og Péturs Gunnlaugssonar í síðdegisútvarpinu í gær segist ekki sjá neina ástæðu til þess að gefa kröfuhöfunum neitt eftir “ ég held að þeir séu haldnir miklum ranghugmyndum ef þeir halda að við séum að fara að gefa þeim einhvern afslátt, við erum að vinda smám saman ofan af afleiðingum hrunsins og það verður að gerast mjög hægt því ef það er gert of hratt skapar það meira vesen, en það er ekki hægt að taka á þessum kröfuhöfum með einhverjum vettlingatökum„,segir Smári.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila