Angela Merkel kanslari Þýskalands segir þjóðverja og löndin innan Evrópusambandsins geta tekið við mun fleiri flóttamönnum en gert er í dag. Þetta kemur fram í nýju viðtali þýska blaðsins Fokus við kanslarann. Fram kemur að Evrópusambandið hafi þegar gert samning við Sameinuðu þjóðirnar um móttöku 40.000 flóttamanna í stað 20.000 eins og áður hafði verið gert ráð fyrir. Haft er eftir Merkel í blaðinu að hún telji slíka aukningu á móttöku lítið mál fyrir Evrópusambandið þar sem íbúarnir séu um 500 milljónir, en þessi fjöldi er fyrir utan þann fjölda sem hafa komið með ólögmætum hætti inn í lönd ESB.